
Nokkur orð um fyrirtækið
Cetus ehf er rótgróið og traust fyrirtæki sem sérhæfir sig í rannsóknarvörum, rannsóknartækjum og vörum fyrir heilbrigðis- og sjúkrastofnanir. Vörunúmer Cetus ehf telja hátt í tug þúsunda og sérhæfir fyrirtækið sig í sérpöntun á vörum og tækjum fyrir hinar ýmsu stofnanir ásamt því að þjónusta sérhæfð tæki þeirra.Hjá okkur færðu mikið úrval af vörum fyrir hinar ýmsu sérgreinar
Tækja- og rannsóknabúnaður ásamt mikilli breidd rafmagnstækja til ýmissa rannsókna er að finna hjá okkur. Tæknideild Cetus sinnir ráðgjöf og þjónustu auk viðhalds á tækjum á okkar vegum. Þá býður Cetus ehf upp á viðurkennda og staðlaða kvörðun á BioHit pípettunum sem þykja með þeim traustustu á markaðnum.

Neyðarþjónusta
Cetus býður upp á sólarhringsvakt til að bregðast við bilunum eða annarri þjónustu er kunna að koma upp á ögurstundu. Neyðarsíminn er 897-8481 allan sólarhringinn, allan ársins hring.